
Elsta starfandi kvikmyndahús landsins er í Hafnarfirði, Bæjarbíó en jafnframt þjónar það bæjarbúum sem menningarhús. Þar eru reglulega, ásamt kvikmyndasýningum, tónleikar og uppistand.
Bærinn heldur margar hátíðir; þar má nefna Víkingahátíðina, Hjarta Hafnarfjarðar ásamt mörgum minni samkomum í menningarlífi Hafnfirðinga.
Jólaþorpið er einn af árlegum viðburðum á aðventunni á Þórsplani þar sem hægt er að versla handverk af heimamönnum og næla sér í glögg og annað góðgæti og njóta iðandi jólastemmingarinnar.


Það er alltaf eitthvað sjarmerandi og á sama tíma heimilislegt við Hafnarfjörðinn. Bærinn er gjarnan í ljúfari takti en nágrannasveitarfélögin, enda Hafnfirðingar þekktir fyrir að taka sjálfa sig ekkert of alvarlega.
Óvanalegt er að byggt sé inni í gamalgrónu hverfi eins og á þessari lóð í suðurbæ Hafnarfjarðar. Þegar eru allir innviðir til staðar og í seilingarfjarlægð ásamt verslun og þjónustu.
Í bænum eru göngu- og hjólaleiðir sem eru mikilvægur hluti af samgöngukerfi bæjarins. Í kjallara fjölbýlishússins er rúm hjólageymsla með góðu aðgengi upp á götu og að hjólastígum hverfisins.
Hafnfirðingar eru gjarnan frjálslegir í fasi og má nefna í því samhengi að bæjarstjórinn tekur reglulega á móti íbúum í einu af gróðurhúsunum við Þórsplan í kaffisopa og spjall.
Helstu náttúruperlur í Hafnarfirði fyrir utan höfnina eru Helgafellið sem er eitt vinsælasta uppgöngufjall höfuðborgarsvæðisins, svo og Hvaleyrarvatn ásamt einstaklega fallegum golfvelli Keilis uppi á holti.