Arkitekt húsanna, Gunnar Páll Kristinsson, segir hér frá þeim áskorunum sem hann stóð frammi fyrir við hönnun húsanna. Það þarf að nálgast verkefni af þessu tagi af nærgætni og virðingu til að falla vel inn í eldra hverfi. Þetta er önnur nálgun en þegar byggð eru ný hverfi.

Það voru þær Harpa Hilmarsdóttir og Freyja Árnadóttir sem sáu um að teikna innréttingarnar og velja efni. Þær lögðu áherslu á að innréttingarnar væru fallegar og notendavænar.
Innréttingarnar eru sérsmíðaðar frá ítalska framleiðandanum Cubo design og úr línu sem er kölluð Miton sem er hágæðavara með öllu því nýjasta frá Blum, brautir, skúffur og lamir.
Borðplöturnar eru frá ítalska framleiðandanum Santamargherita og eru úr Quartz sem er gott og lokað efni og er liturinn á þeim kallaður Istria Lucido.
Litaþemun eru tvö og í hluta íbúðanna eru tveir litir í þemanu sem kallast Noce Americano blandað við ljósari lit sem kallast Grigio Mare Opaco. Hitt litaþemað er einlitt með lit sem er kallaður Noce Mocca.
Innréttingarnar eru klassískar þar sem áhersla er á að þær standist kröfur samtímans og séu endingargóðar.

Garðurinn er einstaklega fallegur og íbúðir á fyrstu hæð hafa sérafnotareiti sem eru hellulagðir með stórum flísum. Í garðinum er gróðurhús þar sem íbúar geta notið góðviðrisdaga og ræktað blóm og plöntur.
Blómakerin sem skilja að sérafnotareitina eru úr kortenstáli og hluti garðsins verður hellulagður.
Hér til hliðar getur þú tekið hring í garðinum:









